Stórt skref var stigið í dag í undirbúningi vegna gangsetningu verksmiðjunnar. Nú hefur verksmiðjan verið tengd við flutningskerfi Landsnets. Sigmundur Jónsson rafveitustjóri og Jóhann Helgason framkvæmdastjóri tæknisviðs, eða „Simmi og Jói í stuði“ eins og við kjósum að kalla þá, leiddu verkið ásamt Renato Silvestre með dyggri aðstoð annarra starfsmanna. Við erum því tilbúin að taka við orku frá Þeistareykjavirkjun þegar framleiðsla hefst. Framkvæmdir ganga ágætlega og prófanir á búnaði ganga vel, þótt enn sé nokkuð í land að gangsetning fyrri ofnsins geti hafist. Snjókoma og kuldi hafa haft áhrif að undanförnu en ekki meira en svo að við reiknum með því að setja verksmiðjuna okkar í gang um næstkomandi mánaðarmót, þ.e. febrúar-mars.

Báðir ofnar eru nánast tilbúnir og mötunarkerfi fyrir hráefni er einnig að verða tilbúið til notkunar. Vinna við tækjasamstæður til að mala og pakka kíslinum er komin styst á veg en hún ætti að klárast á réttum tíma.

Öflugur hópur vinnur þessa dagana við prófanir á tölvubúnaði og öðrum kerfum verksmiðjunnar. Allt hráefni er komið á staðinn og allt starfsfólk hefur verið ráðið.