Eftir viðburðaríka og góða viku hefur afl á spennana verið aukið og starfa þeir nú stöðugt. Einnig er allri umbótavinnu við reykhreinsivirkið lokið þar með talið lokaprófanir á síupokum. Það styttist í að hráefnum verði matað í ofninn og að fyrsti málmurinn verði tappaður af honum svo nú er áherslan helst lögð á aukna þjálfun og æfingu á tæki og vinnubrögð í kringum þá mikilvægu ferla.