Í gær héldu starfsmenn PCC BakkiSilicon uppá það að gangsetningarferli Birtu sé hafið með köku. Kakan rann ljúft niður og eru starfsmenn ánægðir og spenntir yfir því að fara loksins að vinna þau störf sem þau hafa þjálfað sig í undanfarna mánuði. Upphitun ofnins heldur áfram en í dag urðu smá tafir á meðan slökkt var á ofninum á meðan athuganir á vatnskælikerfinu voru gerðar til að tryggja að engir lekar væru frá því og í ofninn. Núna hefur ofninn verið settur á snúning svo að upphitun bæði hleðslu og fyllu ofnsins sé jöfn.