Starfsmenn hafa verið ötulir að undirbúa fyrir fyrsta málm sem Birta mun gefa af sér núna í vikunni. Ber hæst æfingar við töppun og útsteypingu. Einnig er verið að leggja síðustu hönd á smíði sértækra töppunarverkfæra og eiga iðnaðarmenn sem hafa komið til aðstoðar um helgina mikið hrós skilið. Þeir hafa sýnt af sér mikinn dugnað og elju til að allt geti verið tilbúið þegar stóra stundin rennur upp. Allir sem að verkefninu hafa komið eru orðnir mjög spenntir að sjá málminn koma og uppskera fyrir erfiði  síðustu vikna og mánaða.